Frístund

Félagsmiðstöðin Neon

Félagsmiðstöðin í Fjallabyggð heitir Neon.

Í Fjallabyggð er starfandi félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í 7. - 10. bekk. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða börnum og unglingum í Fjallabyggð upp á tómstundir og félagslegt umhverfi á sínum eigin forsendum.

Fjölbreytt íþróttastarf er á vegum hinna ýmsu íþrótta- og frístundafélaga á staðnum

Deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála hefur yfirumsjón með starfi hennar en að jafnaði eru starfsmenn sem sjá um daglegt starf.

Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða börnum og unglingum í Fjallabyggð upp á tómstundir og félagslegt umhverfi á sínum eigin forsendum.

Félagsmiðstöðin er staðsett að Suðurgötu 4 á Siglufirði.

Að jafnaði er opið 2 kvöld í viku fyrir 8.-10. bekkinga.

Félagsmiðstöðin Neon

Staðsetning
Suðurgata 4, Siglufjörður, Ísland