Félag eldri borgara Siglufirði
Félag eldri borgara Siglufirði
Það var árið 1983, þá hafði félagsmálaráð Siglufjarðar haldið áfram frá fyrri árum því starfi að bjóða eldri borgurum bæjarins til samverustundar á Hótel Höfn, "opið hús" var það kallað, því allir voru velkomnir, þiggja kaffi og meðlæti, njóta skemmtiatriða, setjast að spilum eða spjalla við kunningjana.
Á einu slíku ,,opnu húsi,, í haustbyrjun 1983 fóru nokkrir gamlir félagsmálajaxlar að ræða það sín á milli hvort ekki væri tímabært að stofna félag eldri borgara í Siglufirði, eins og gert hafði verið á Akureyri og reyndar víðar í þéttbýli landsins. Er nú ekki að orðlengja það að skömmu síðar boða þeir til stofnfundar félags eldri borgara Siglufirði.
Þessir þrír heiðursmenn voru Hjörleifur Magnússon, Jóhann Þorvaldsson og Eggert Theodórsson. Síðan var boðað til stofnfundar 19. nóvember 1983 og fyrsta stjórn félagsins kjörin, formaður: Jóhann Þorvaldsson auk hans í stjórn vöru kjörin Hjörleifur Magnússon, Þórhalla Hjálmarsdóttir,Jónas Tryggvason og Soffía Jónsdóttir. Fundarstarf félagsins varð fljótlega að föstum lið í daglegu lífi félagsmanna. Fundir voru fyrst haldnir reglulega tveir í mánuði. Fundarstaður var í safnaðarheimilinu í kirkjunni.
Starf félagsins hefur verið öflugt, fundir frá október og til maí. Félagið fer í sumarferðir yfirleitt á sumrin, farið til Færeyja, Vesrmannaeyja, Hrísey svo að eitthvað sé nefnt, Kanarí líklega eftir.
- Félagið hefur frá upphafi verið hagsmunagæsla fyrir málefnum aldraðra.
- Kynningu á réttindum aldraðra
- Úrbótum í húsnæðismálum
- Atvinnu-og félagsmálum
- Og samskipti við stjórnsýslu
Formenn FEBS eru:
Jóhann Þorvaldsson, 18. feb 84
Jónas Björnsson 85
Þórhalla Hjálmarsdóttir 87
Jónas Tryggvason 88
Soffía Jónsdóttir 89
Anna Júlía Magnúsdóttir 90
Anna Lára Hertervig
Ólafur Jóhannsson
Sveinn Björnsson 2002
Margrét Jónasdóttir 2010
Sverrir Sveinsson 2013
Ingvar Á Guðmundsson 2017
Ólafur Baldursson 2022 - núverandi.
Nú af því sem er að gerast hjá okkur í dag er helst að nefna fundi með deildarstjóra félagmáladeildar Fjallabyggðar ásamt verkefnisstjóra H 60+, við fundum hálfsmánaðrlega , markmið er að tengja félagið og ráðamenn Fjallabyggðar saman, hvað má bæta, upplýsingarstreymið sé skýrara, einnig er fundur annahvern mánuð sameiginlegur, Félög eldri borgara í Siglufirði og Ólafsfirði , búið að halda einn svoleiðis og lofar hann góðu. Undanfarin ár hefur Fjallabyggð boðið báðum félögum á aðventuhátíð í desember og eru rútuferðir á milli.
Lækjargötu 11
580 Siglufirði
Fomaður: Ólafur Baldursson
Sími: 992 4123
Netfang: olibald@simnet.is
